Mörgum nemendum er enn í fersku minni þegar listamaðurinn Örn Ingi kom í heimsókn í Grenivíkurskóla undir lok 9. áratugarins og vann fjölbreytt og skemmtileg verkefni með nemendum skólans. Fjölskylda Arnar Inga ákvað á dögunum að færa skólum um land allt, sem Örn Ingi hafði tengingu við, myndverk úr safni listamannsins. Örn Ingi hefði orðið áttræður þann 2. júní sl,. en hann lést árið 2017.
Þetta framtak fjölskyldu Arnar Inga er afskaplega höfðinglegt og erum við í Grenivíkurskóla þakklát fyrir gjöfina. Henni verðið komið fyrir á góðum stað í skólanum og mun vafalaust gleðja augu þeirra sem um skólann ganga um ókomin ár. Verkið sem skólinn valdi nefnist "Úr Svarfaðardal" og er olíumálverk frá 1992.
Við þökkum fjölskyldu Arnar Inga kærlega fyrir þessa mögnuðu gjöf!
610 Grenivík Sími á skrifstofu: 414-5413 Netfang: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 414-5410 / grenivikurskoli@grenivikurskoli.is