Nemandi vikunnar

Tómas Rafn er nemandi vikunnar að þessu sinni, en hans nafn kom upp úr hattinum þegar dregið var á síðustu samveru. Af því tilefni svaraði hann nokkrum laufléttum spurningum.

Nafn: Tómas Rafn Harðarson

Gælunafn: Tommi, Tommi Túrbó

Bekkur: 6. bekkur

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Íþróttir.

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Farið á sleða og krossara.

Áhugamál? Sleðar, krossarar, snjóbretti og kraftmiklir bílar.

Uppáhaldslitur/litir? Svartur og hvítur.

Uppáhaldsmatur? Fiskur og kjöt.

Uppáhaldsjónvarpsefni? Slednecks.

Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? NLE Choppa.

Uppáhaldsíþróttalið/íþróttamaður? Liverpool - Salah.

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Vinna við að laga sleða og krossara.

Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Tenerife á Spáni, búinn að heyra margar skemmtilegar sögur af því og langar að fara þangað.

Ef þú verður frægur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu verða frægur? Fyrir að vera atvinnumaður á sleða eða krossara.

Hvaða reglu heima fyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Að ég myndi ekki þurfa að lesa.

Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Að allir gætu farið í skóla og gefa þeim föt, pening, mat og hreint vatn.

Ef þú gætir fundið upp eitthvað til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Vél sem sér um allt heima eins og að vaska upp, brjóta saman þvottinn, setja í þvottavélina, svæfa börn o.s.frv.

Ef þú gætir ferðast til baka aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Ég veit ekki.

Við þökkum Tómasi kærlega fyrir skemmtileg svör.