Hinn árlegi jólagrautur var snæddur í hádeginu í dag og að vanda leyndust nokkrar möndlur í grautnum.
Að þessu sinni voru það Heimir Már, Brynjar Snær, Karen Fatima, Smári Signar og Ágúst Hrafn sem duttu í lukkupottinn og fengu möndlu. Í verðlaun fengu þau fallega jólasveina. Á morgun verður svo hátíðleg stund í hádegismatnum. Hátíðarmatur verður á boðstólum, nemendur munu flytja jólahugvekju og spila jólalög.
| 610 Grenivík Sími á skrifstofu: 414-5413 Netfang: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is | Skrifstofa skólans er opin frá  | 
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 414-5410 / grenivikurskoli@grenivikurskoli.is