Grenivíkurskóli 45 ára

Í dag, 13. október, fagnar Grenivíkurskóli 45 ára afmæli sínu, en það var á þessum degi árið 1981 sem skólinn flutti í núverandi húsnæði. Áður, eða frá árinu 1925, hafði skólinn starfað í Gamla skóla.

Í tilefni dagsins fengum við góðan gest í heimsókn, Björn Ingólfsson, sem starfaði sem skólastjóri skólans í 36 ár. Hann rifjaði upp sögu skólans og sagði frá skemmtilegum minningum sínum um skólahaldið á árum áður. Einnig skoðuðum við gamlar myndir og fengum góða leiðsögn um fólk og viðburði á myndunum.