Styrkur til bókakaupa

Undanfarin ár hefur Grenivíkurskóli fengið veglega styrki frá fyrirtækjum hér á svæðinu fyrir jólin, sem nýttur hefur verið til bókakaupa, og hafa allir nemendur því fengið bók í jólagjöf frá skólanum síðustu ár. Að þessu sinni var ákveðið að nýta styrkina heldur til sameiginlegra bókakaupa og setja upp í skólanum hillur undir jólabókaflóðið á besta stað í skólanum. Nemendur geta þar valið úr glæsilegu úrvali glænýrra bóka, til viðbótar við góðan bókakost sem bókasafnið býr yfir, og er það von okkar að þetta framtak auki lestraráhuga nemenda.

Þau fyrirtæki sem styrktu verkefnið að þessu sinni eru Darri ehf, Sparisjóður Höfðhverfinga og Gjögur hf., og færum við þeim bestu þakkir fyrir frábæran stuðning!