Skólasetning Grenivíkurskóla 2026

Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn.

Nú er að hefjast nýtt og spennandi skólaár í Grenivíkurskóla og við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til leiks!

Mánudaginn 24. ágúst hefst skólastarfið formlega. Skólinn er settur á útisvæði skólans klukkan 8:20 og eru foreldrar og forráðamenn velkomnir. Að skólasetningu lokinni verður farið inn í skólastofur þar sem nemendur hitta kennara sína. Eftir það fá nemendur morgunmat áður en haldið er í skemmtilegan útivistardag. Hádegismatur er klukkan 12:00 og lýkur skóla eftir matinn. Frístund verður opin.

Þriðjudaginn 25. ágúst verður einnig útivistardagur. Þá verður farið til Húsavíkur þar sem við heimsækjum Hvalasafnið, göngum í Skrúðgarðinn, förum í leiki og borðum nesti. Við komum til baka kl. 13:00 og nemendur fara þá heim. Frístund verður opin.

Miðvikudaginn 26. ágúst hefst svo kennsla samkvæmt stundaskrá.

Við hlökkum til að eiga frábært skólaár með ykkur!