Linda Rakel nemandi vikunnar

Linda rakel er nemandi vikunnar að þessu sinni en við drögum alltaf nemanda vikunnar í samverustundinni okkar á mánudögum.

Nafn: Linda Rakel

Gælunafn: Ekkert

Bekkur: 3. bekkur

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Mér finnst handmennt það skemmtilegasta í skólanum

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Að fara á skíði er mjög skemmtilegt

Áhugamál? Skíði og lita

Uppáhaldslitur? Blár er uppáhalds liturinn minn

Uppáhaldsmatur? Það er pizza og kakósúpa

Uppáhaldssjónvarpsefni? Svampur Sveinsson

Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Ég hef ekki hugmynd

Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Íslenska landsliðið í fótblta

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Vinna á leikskóla

Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Ég myndi velja Svíþjóð af því að það er svo gaman þar.

Ef þú verður fræg/ur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða frægur? Ég veit ekki, hef ekki hugmynd.

Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Að ég mætti ráða hvað ég borða

Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Ég myndi gefa öllum peninga

Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Nú veit ég ekki alveg

Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Að muna að vera alltaf góð við alla

 

Við þökkum Lindu Rakel kærlega fyrir skemmtileg svör.