Inga Sóley nemandi vikunnar

Þá er komið að nemanda vikunnar sem er alltaf dreginn út í samverunni á mánudögum. Inga Sóley Jónsdóttir var dregin út að þessu sinni.

 

Nafn: Inga Sóley Jónsdóttir

Gælunafn: Ekkert

Bekkur: 3. bekkur

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Skrift og myndmennt

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór með Elmu, Þorsteini og Agli í Legoland

Áhugamál? Labba með mömmu og pabba upp á Höfða, fótbolti

Uppáhaldslitur? Sægrænn

Uppáhaldsmatur? Kakósúpa

Uppáhaldssjónvarpsefni? Svampur Sveinsson

Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Emmsé Gauti

Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? KA

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Hárgreiðslukona

Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Tékkland því það er skemmtilegt að hitta frændfólk mitt.

Ef þú verður fræg/ur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða frægur? Fótbolta

Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Ekki neinu

Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Föt

Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Loka fyrir alla sjúkdóma og stríð

Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Ég myndi láta mig hætta að vera hrædd við blóðprufur

 

Við þökkum NAFN kærlega fyrir skemmtileg svör.