Danssýning

Núna síðustu 8 vikur hafa allir nemendur í Grenivíkurskóla fengið danskennslu á fimmtudögum. Elín Halldórsdóttir danskennari hefur komið til okkar alla fimmtudaga síðustu 8 vikurnar og fengið til sín alla nemendahópana og hefur danskennslan gengið frábærlega eins og vera ber. Fimmtudaginn fyrir tveimur vikum féll niður danskennsla svo hafa þurfti danskennslu tvo daga í röð núna í síðustu viku, fimmtudag og föstudag. Á föstudeginum var svo danssýning kl. 13.00 þar sem allir hóparnir sýndu afrakstur erfiðisins.