Ágúst Hrafn nemandi vikunnar

Nemandi vikunnar að þessu sinni er Ágúst Hrafn. Hann var dreginn út í samverunni okkar á mánudaginn eins og venjan er.

 

Nafn: Ágúst Hrafn Guðjónsson

Gælunafn: Ágúst

Bekkur: 1. bekkur

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Að vera úti

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Að gera snjóhús með pabba

Áhugamál? Veit það ekki

Uppáhaldslitur? Blár

Uppáhaldsmatur? Fiskur (steiktur)

Uppáhaldssjónvarpsefni? Turtles

Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Veit það ekki

Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Man U

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Veit ekki

Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Tenerife af því að það er heitt þar

Ef þú verður fræg/ur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða frægur? Á hjólabretti

Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Að fá að vera úti eftir kvöldmat

Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Nammi

Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Ég veit það ekki

Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Vertu duglegur í skólanum

 

Við þökkum Ágústi kærlega fyrir skemmtileg svör.