Laus kennarastaða til umsóknar

Laus er til umsóknar u.þ.b. 50% staða grunnskólakennara við Grenivíkurskóla í afleysingum skólaárið 2016-2017. Starfið felur í sér almenna bekkjarkennslu og stuðningskennslu.

 

Hæfniskröfur

¨      Kennsluréttindi á grunnskólastigi.

¨      Hæfni í mannlegum samskiptum.

¨      Faglegur metnaður.

¨      Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.


Í Grenivíkurskóla er 51 nemandi í 1. – 10. bekk. Í skólanum er góður starfsandi þar sem leitast er við að haga skólastarfinu í sem fyllsta samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins. Meðal þess sem við leggjum ríka áherslu á er góður skólabragur, lýðheilsa og umhverfismennt. 


Umsóknarfrestur er til 13. maí 2016
. Umsóknum skal skilað í tölvupósti á netfangið grenivikurskoli@grenivikurskoli.is eða á skrifstofu skólastjóra.


Nánari upplýsingar gefur Þorgeir Rúnar Finnsson, skólastjóri, í síma 414-5410 eða í tölvupósti thorgeir@grenivikurskoli.is