Pétur Þór nemandi vikunnar

Á laufabrauðsdeginum (föstudaginn síðasta) var dreginn nemandi vikunnar þar sem það gleymdist í samverunni á mánudaginn síðasta. Það var Pétur Þór Arnþórsson sem var dreginn út og hann svaraði fyrir okkur nokkrum skemmtilegum spurningum.

 

Nafn: Pétur Þór

Gælunafn: Peddi

Bekkur: 7. b.

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? læra, stærðfræði

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór til Frakklands og sá Ísland - Frakkland á EM

Áhugamál? Fótbolti og Judo

Uppáhaldslitur? Blár

Uppáhaldsmatur? Pizza

Uppáhaldssjónvarpsefni? Fótbolti

Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Justin Bieber

Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Mancester United - Zlatan

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Nuddari eða frægur í Judo

Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Ég mundi vilja fara á Fílabeinsströndina því hún er í Afríku

Ef þú verður fræg/ur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða frægur? Fyrir Judo

Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Það eru bara góðar reglur heima

Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Vatn

Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Vél sem býr til vatn

Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Æfa mig meira fyrir dönskupróf

 

Við þökkum Pétri kærlega fyrir skemmtileg svör.