Kristjana Elín nemandi vikunnar

Kristjana Elín var dregin nemandi vikunnar í samverustundinni á mánudaginn síðasta. Hún er búinn að svara nokkrum spurningum og kom með nokkur skemmtileg svör!

 

Nafn: Kristjana Elín Sigþórsdóttir

Gælunafn: Krissa

Bekkur: 1. bekkur

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Að læra ensku

Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór í Legoland og þegar ég fór til London

Áhugamál? Fimleikar, skeljasafnið mitt og baka

Uppáhaldslitur? Gulur

Uppáhaldsmatur? Pasta

Uppáhaldssjónvarpsefni? Svampur Sveinsson

Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Veit ekki

Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Ísland/Smári

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Það veit ég ekki

Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Danmerkur í dýragarðinn

Ef þú verður fræg/ur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða frægur? Skeljasafnið mitt

Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Borða meira kjöt

Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Ég myndi gefa sjónvarp og bangsa

Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Stærri lyftur

Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Að vera alltaf lítil því þá var ég svo sæt

 

Við þökkum Kristjönu kærlega fyrir skemmtileg svör.