Aðalval 
   Forsíða
Foreldrafélagið
Fræðslunefnd
Mötuneyti - matseðlar
Sjálfsmat skóla
Aðfangalistar
Viðbrögð við flensufaraldri
Skóladagatal
Skólanámsskrá
Tónlistaskóli Eyjafjarðar
Um skólann
Skólareglur
Grænfáninn
Allt hefur áhrif...
Olweusarverkefnið
Umsýsla
 Fólkið í skólanum 
   Skólaráð
Fræðslunefnd
Nemendaráð
Nemendarverndarráð
Nemendur
Skólahjúkrunarfræð-ingur
Starfsfólk
Stjórn foreldrafélags
Umsjónarkennarar

Afmæli í september.

5. Karol Brynja 7 ára
18. Elín Berglind 31 ára
18. Þorgeir Rúnar 26 ára
19. Edda 40 ára
28. Sigríður Hulda 37 ára
29. Ingólfur Birnir 9 ára
29. Kristján Bjarki 9 ára
 Aðrar vefsíður 
   Félög og fyrirtæki
Grýtubakkahreppur
Skólar
Skólatengdir vefir
Til gagns og gamans
 Heimsóknir á síðuna 
  Núna: 7
  Í dag: 293
  Í allt: 321981

Fræðslunefnd

    Fræðslu- og æskulýðsnefnd Grýtubakkahrepps


    Meginhlutverk og skipan fræðslu- og æskulýðsnefndar
    1. gr.
    Í samræmi við 11. og 12. grein laga um grunnskóla nr. 66/1995 og 9. grein leikskólalaga nr. 78/1994 fer fræðslu- og æskulýðsnefnd Grýtubakkahrepps með málefni grunn- og leikskóla sveitarfélagsins, samkvæmt lögum og reglugerðum um grunn- og leikskóla og samþykktum um stjórn og fundarsköp Grýtubakkahrepps. Einnig fer nefndin með málefni félagsmiðstöðvar. Nefndin er ráðgjafandi varðandi íþrótta- og æskulýðsmál.

    2. gr.
    Sveitarstjórn kýs að afloknum sveitarstjórnarkosningum fimm fulltrúa í fræðslu- og æskulýðsnefnd og þrjá til vara. Nefndin kýs sér formann, varaformann og ritara á fyrsta fundi sínum.

    3. gr.
    Fræðslu- og æskulýðsnefnd skal sjá um að öll börn í skólahverfinu njóti lögboðinnar fræðslu. Í störfum sínum ber fræðslu- og æskulýðsnefnd einnig að sjá um að allir nemendur á skyldunámsstigi hljóti sem besta aðstöðu og jöfnust tækifæri til náms og að skólinn veiti sérhverjum nemanda fræðslu eftir aldri sínum og þroska og í samræmi við gildandi námsskrá á hverjum tíma. Fræðslu- og æskulýðsnefnd fylgist með og stuðlar að því að skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu í samræmi við lög og reglugerðir sbr. 42. gr. og 43. laga nr. 66/1995. Með sérfræðiþjónustu er átt við almenna og greinabundna kennsluráðgjöf, námsráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Fræðslu- og æskulýðsnefnd sér um að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar útbúnaður. Fræðslu- og æskulýðsnefnd, ásamt skólastjóra, lítur eftir að uppfylltar séu kröfur laga og reglugerða á þessu sviði og gerir tillögur til sveitarstjórna um úrbætur.

    4. gr.
    Formaður kveður til fundar svo oft sem þurfa þykir, þó ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Skylt er að verða við tilmælum skólastjóra/leikskólastjóra um fund í fræðslu- og æskulýðsnefnd enda sé fundarefni tilgreint. Einnig ber að kveðja til fundar ef a.m.k. þriðjungur aðalmanna í skólanefnd æskir þess. Að öðru leyti fara fundarsköp eftir IV. kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp Grýtubakkahrepps.

    5. gr.
    Til fundar telst löglega boðað hafi allir nefndarmenn fræðslu- og æskulýðsnefndar, eða varamenn í forföllum aðalmanna svo og aðrir sem seturétt eiga á fundinum, verið boðaðir með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara og þeim jafnframt greint frá dagskrá fundarins. Komi upp mál sem krefst skjótrar úrlausnar fræðslu- og æskulýðsnefndar getur fyrirvari um fundarboðun verið skemmri ef enginn fræðslu- og æskulýðsnefndarmanna mælir gegn því.

    6. gr.
    Fræðslu- og æskulýðsnefnd getur enga ályktun gert nema meirihluti hennar sitji fund. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Fræðslu- og æskulýðsnefndarmaður hefur ekki atkvæðisrétt um mál sem varða hann sjálfan eða náið skyldmenni hans og skal hann í slíkum tilvikum víkja fyrir varamanni.

    7. gr.
    Rita skal í fundargerðarbók allar tillögur sem fram eru bornar, svo og samþykktir og ályktanir fræðslu- og æskulýðsnefndar, og skulu allir viðstaddir undirrita fundargerðina. Fundargerðarbók, afrit af skýrslum, sendibréfum og skjölum skólanefndar, lög, reglugerðir og erindisbréf skulu vera tiltæk á öruggum stað. Formaður fræðslu- og æskulýðsnefndar skal sjá um að afrit af fundargerðum fræðslu- og æskulýðsnefndar séu send sveitarstjórn og skólastjóra/leikskólastjóra. Allir þeir sem hafa seturétt á fundum fræðslu- og æskulýðsnefndar eiga einnig rétt á að fá afrit af fundargerðum hennar. Þeir sem sitja fundi fræðslu- og æskulýðsnefndar skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau einkamál er rædd kunna að vera á fundum. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum.

    8. gr.
    Auk fræðslu- og æskulýðsnefndarmanna eiga eftirtaldir rétt til setu á fræðslu- og æskulýðsnefndarfundum með málfrelsi og tillögurétt:
    a) Skólastjóri og leikskólastjóri og í forföllum staðgenglar þeirra eða aðstoðarskólastjórar.
    b) Kennarafulltrúar sem kosnir eru úr hópi fastra kennara í skólahverfinu.
    c) Einn fulltrúi foreldra/forráðamann grunnskólabarna.
    d) Sveitarstjóri.
    e) Einn fulltrúi starfsfólks leikskóla.
    f) Einn fulltrúi foreldra/forráðamanna leikskólabarna.
    g) Forstöðumaður félagsmiðstöðvar

    9. gr.
    Fræðslu- og æskulýðsnefnd ber að hafa skrá yfir alla skólaskylda nemendur í skóla-hverfinu. Verði verulegur misbrestur á skólasókn skólaskylds barns ber skólastjóra að gera fræðslu- og æskulýðsnefnd viðvart. Fræðslu- og æskulýðsnefnd skal leysa úr vandamálum, sem skólastjóri vísar til nefndarinnar, er varða skólasókn einstakra barna á skólaskyldualdri. Fræðslu- og æskulýðsnefnd getur vísað slíkum málum til menntamálaráðuneytis til úrskurðar finnist ekki viðunandi úrræði.

    10. gr.
    Skólastjóri getur vísað nemanda úr skóla um stundarsakir vegna slæmrar hegðunar enda tilkynni hann forráðamönum nemanda og fræðslu- og æskulýðsnefnd tafarlaust þá ákvörðun. Fræðslu- og æskulýðsnefnd og skólastjóri taka þá málið til meðferðar í samráði við sérfræðiþjónustu. Takist ekki að leysa málið innan skólans þannig að allir aðilar þess verði sáttir geta bæði forráðamenn og fræðslu- og æskulýðsnefnd vísað málinu til menntamálaráðuneytis sem leitar úrlausnar og getur úrskurðað með hvaða hætti úr skuli bætt. Fræðslu- og æskulýðsnefnd getur falið skólaskrifstofu/sérfræðiþjónustu framkvæmd ákvæða þessa kafla (9. - 11. gr.)

    11. gr.
    Sveitarstjórn ræður skólastjóra grunnskóla og leikskóla. Hafi ekki verið ákveðinn annar háttur veitir fræðslu- og æskulýðsnefnd viðtöku umsóknum um skólastjórastöður. Að loknum umsóknarfresti skal fræðslu- og æskulýðsnefnd halda fund svo fljótt sem auðið er, fjalla um umsóknir og senda þær sveitarstjórn ásamt umsögnum og tillögum um val á skólastjóra/leikskólastjóra.

    12. gr.
    Skólastjóri/leikskólastjóri ræður kennara, leikskólakennara, aðstoðarskólastjóra, ráðskonu, skólabílstjóra og skólaliða í samráði við fræðslu- og æskulýðsnefnd innan heimilda fjárhagsáætlunar. Húsvörður grunnskóla er ráðinn af sveitarstjórn af fenginni umsögn fræðslu- og æskulýðsnefndar. Ef ráðstafa þarf skólahúsnæði til skólastarfs utan venjulegs skólatíma þarf að gera það í samráði við húsvörð. Ef staða losnar við grunn- eða leikskóla eða þörf er á viðbótarstarfsmanni gera skólastjóri/leikskólastjóri viðeigandi ráðstafanir í samráði við fræðslu- og æskulýðsnefnd/sveitarstjórn. Sérhverjum umsækjenda skal tilkynnt, svo fljótt sem auðið er, hvaða afgreiðslu umsókn hans fékk. Við ráðningar skólastjóra, leikskólastjóra, aðstoðarskólastjóra, leikskólakennara og kennara skal gæta ákvæða gildandi laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum. Stefnt skal að því að ráða í stöður skólastjóra, leikskólastjóra, aðstoðarskólastjóra, leikskólakennara og kennara fyrir 1. maí ár hvert.

    13. gr.
    Láti skólastjóri, leikskólastjóri, kennari, leikskólakennari eða annar fastur starfsmaður grunnskóla eða leikskóla af störfum sökum aldurs eða að eigin ósk skal hann tilkynna það skriflega til skólastjóra/leikskólastjóra og fræðslu- og æskulýðsnefndar með eigi skemmri fyrirvara en uppsagnafresti nemur og helst fyrir 1. febrúar, svo og þeir kennarar sem æskja leyfis frá störfum. Forfallist skólastjóri/leikskólastjóri, sem ekki hefur aðstoðarskólastjóra, fer sá af föstum kennurum skólans með skólastjórn sem falið var það hlutverk í upphafi skólaárs í samræmi við 23. gr. laga nr. 66/1995.

    14. gr.
    Fyrir lok kennslutíma ár hvert skal skólastjóri/leikskólastjóri kynna sér hvort lausráðnir starfsmenn hafa hug á að vera áfram í stöðum sínum. Stundakennarar eru aðeins ráðnir frá ári til árs.

    15. gr.
    Komi upp ágreiningur milli skólastjóra/leikskólastjóra annars vegar og kennara og/eða annarra starfsmanna grunnskóla/leikskóla hins vegar, getur hvor aðili um sig vísað málinu til fræðsku- og æskulýðsnefndar sem leitar lausnar. Úrskurður skólastjóra/leikskólastjóra skal gilda þar til samkomulag hefur orðið um annað. Takist ekki að finna viðunandi lausn skal vísa málinu til menntamálaráðuneytis. Ágreiningur milli skólastjóra/leikskólastjóra og fræðslu- og æskulýðsnefndar skal vísa til sveitarstjórnar eða menntamálaráðuneytis eftir eðli málsins. Telji skólastjóri/leikskólastjóri að kennari/leikskólakennari eða annar starfsmaður skóla/leikskóla hafi gerst brotlegur í starfi skal hann áminna viðkomand, fyrst munnlega og síðan skriflega. Beri áminning ekki árangur, er skólastjóra/leikskólastjóra heimilt að veita starfsmanni lausn frá starfi tímabundið, meðan málið er rannsakað.

    16. gr.
    Starfstími nemenda í grunnskóla skal á hverju skólaári vera 180 skóladagar.

    18. gr.
    Fræðslu- og æskulýðsnefnd skal staðfesta áætlun um starfstíma skóla ár hvert og fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í skólahverfinu. Skólanámskrá er starfsáætlun skóla og greinir frá því sem varðar starfsemi skólans. Skólanámskrá grunn- og leikskóla skal leggja fyrir fræðslu- og æskulýðsnefnd til umsagnar. Fræðslu- og æskulýðsnefnd hefur ekki bein afskipti af störfum kennara/leikskólakennara í skólanum/leikskólanum, stundaskrám, námsefni eða verkaskiptingu milli kennara/leikskólakennara, hún getur þó, ef þörf krefur, lagt til við sveitarstjórn að kennslumagn verði aukið umfram viðmiðunarstundaskrá.

    18. gr.
    Fræðslu- og æskulýðsnefnd getur gert tillögur til skólastjóra og leikskólastjóra um umbætur í skólastarfi. Henni ber að fylgjast með störfum grunnskólans eftir föngum í samráði við skólastjóra og leikskólastjóra og gera sveitarstjórn og menntamálaráðuneyti aðvart ef um alvarlegar misfellur er að ræða að hennar mati.

    19. gr.
    Skólanefnd sér um að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi skólahúsnæði í skólahverfinu og kappkostar að það henti skólastarfinu sem best. Þá lítur fræðslu- og æskulýðsnefnd eftir því að húsnæðið fullnægi þeim reglum um hollustuhætti sem heilbrigðisyfirvöld setja.

    20. gr.
    Sé þörf á nýbyggingu, viðbyggingu eða gagngerum endurbótum skóla gerir fræðslu- og æskulýðsnefnd sveitarstjórn aðvart um það og leggur fram tillögur til úrbóta. Fræðslu- og æskulýðsnefnd ber að leita álits skólastjóra/leikskólastjóra um þessi atriði. Sveitastjórn skal hafa samráð við hlutaðeigandi fræðslu- og æskulýðsnefnd um hvaða sérfræðingar annist hönnun skólabygginga, þ.e. undirbúning, vinnu og áætlanagerð. Ef sveitarfélag óskar eftir að gert sé ráð fyrir aðstöðu til félagsstarfsemi almennings eða til annars slíks í skólahúsnæði/leikskólahúsnæðinu eða í tengslum við það er það heimilt enda liggi fyrir umsögn skólastjóra/leikskólastjóra og fræðslu- og æskulýðsnefndar.

    21. gr.
    Leita skal umsagnar fræðslu- og æskulýðsnefndar um hvort skólahúsnæði sé utan venjulegs skólatíma notað til gistingar og veitingareksturs. Fræðslu- og æskulýðsnefnd ber að líta eftir því að skólahúsnæðið sé tilbúið til kennslu áður en skólastarf hefst ár hvert. Þegar skólamannvirki eru notuð til æskulýðsstarfa, íþróttastarfa eða almennra félagsstarfa skal þess gætt að það raski engu skólahaldi, félagslífi nemenda eða annarri lögbundinni notkun húnsæðis. Ef ráðstafa þarf skólahúsnæði til skólastarfs utan venjulegs skólatíma þarf að gera það í samráði við húsvörð.

    22. gr.
    Reikningsár skólanna miðast við almanaksár. Sveitarstjórn ákveður hver áritar reikninga vegna rekstrar og innkaupa skólans.

    23. gr.
    Fræðslu- og æskulýðsnefnd hlutast til um að í daglegum og vikulegum akstri skólabarna sé farið eftir gildandi fyrirmælum og reglum í þeim efnum. Skólastjóri skipuleggur akstur skólabarna í samráði við fræðslu- og æskulýðsnefnd og gerir tillögur til sveitarstjórnar um fyrirkomulag aksturs.

    24. gr.
    Heilbrigðisþjónusta skólahverfis skal hafa samráð við skólastjóra og fræðslu- og æskulýðsnefnd um skipulagningu og fyrirkomulag heilsugæslu.

     Fréttir og fróðleikur 
       Frá nemendum
    Fróðleiksmolar
    Skólaferðalag 2003
    Skólaferðalag 2006
    Úr skólalífinu
    Úr skólalífinu 08 - 10
    Úr skólalífinu 07 - 08
    Úr skólalífinu 04 - 05
    Úr skólalífinu 03 - 04
     Dagatal 
    ágúst 2010  september 2010  október 2010
    SMÞMFFL
       1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30   
     Myndasafn 
       Myndir 2010 - 2011
    Myndir 2009 - 2010
    Myndir 2008 - 2009
    Myndir 2007 - 2008
    Myndir 2006 - 2007
    Myndir 2005 - 2006
    Myndir 2004 - 2005
    Myndir 2003 - 2004
     Spurningin 
      
    Hvernig leggst skólaárið í þig?
    Vel
    Sæmilega
    Ekki vel


    Sjá niðurstöður
    PHPVefari útgáfa 1.20 midlari@midlari.is - www.midlari.is